Varðskipið Þór
Forseti tekur ásamt forstjóra
Landhelgisgæslunnar, ráðherrum og öðrum á móti hinu nýja varðskipi Þór
þegar það kom til hafnar í Reykjavík. Innanríkisráðherra flutti ávarp,
dómkirkjuprestur blessaði skipið og áhöfn þess og að því loknu sýndi
skipherrann forseta og öðrum ýmsa þætti í búnaði skipsins.
Vefsíða Landhelgisgæslunnar.