Ráðstefna. Endurreisn efnahagslífsins
Forseti sækir ráðstefnu um endurreisn íslensks efnahagslífs sem Seðlabanki Íslands, Alþjóða gjaldeyrissjóðurinn og stjórnvöld efna til. Þar fjalla innlendir og erlendir sérfræðingar um þá lærdóma sem draga má af reynslu Íslendinga frá hruni bankanna, ýmsa þætti í aðdraganda hrunsins og stöðuna í alþjóðlegum efnahagsmálum, einkum stöðu Evrusvæðisins. Dagskrá og efni ráðstefnunnar á vef Alþjóða gjaldeyrissjóðsins.