Veftré Print page English

Samúðarkveðjur. Tyrkland


Forseti sendir forseta Tyrklands Abdullah Gül samúðarkveðjur vegna jarðskjálftanna í Tyrklandi. Þar kemur fram að hugur Íslendinga sé hjá fjölskyldum og vinum þeirra sem látist hafa eða slasast. Þjóðir heims séu á slíkum tímum reiðubúnar að rétta  hjálparhönd; samstaða og samhjálp séu brýn þegar hamfarir náttúrunnar ógni lífi og heilsu. Fréttatilkynning.