Veftré Print page English

Þing UMFÍ


Forseti er viðstaddur setningu 47. sambandsþings UMFÍ sem haldið er á Akureyri. Forseti flutti ávarp og fjallaði þar um hinn mikla árangur sem náðst hefur í starfi UMFÍ; hreyfingin hefði líklegast aldrei verið jafn sterk og öflug. Framlag hennar til forvarnarstarfs og eflingar heilbrigðra lífshátta væri ómetanlegt; það sýndu m.a. unglingalandsmótin um verslunarmannahelgina og þátttaka UMFÍ í Forvarnardeginum. Slíkar hreyfingar væru burðarásar í félagslegum auði Íslendinga en nýlega hefði heimsþekktur bandarískur prófessor sem hér var í tilefni aldarafmælis Háskóla Íslands sagt að ríkulegur félagslegur auður væri ein meginskýring á árangri þjóða.