Veftré Print page English

Iceland Airwaves. KEXP


Forseti ræðir við bandarísku útvarpsstöðina KEXP sem sendir beint út frá Iceland Airwaves hátíðinni. Rætt var um bókasýninguna í Frankfurt, þróun íslenskra bókmennta og tónlistar og hvernig Iceland Airwaves endurspeglar aðgang ungs tónlistarfólks á Íslandi að slíkum viðburðum. Einnig var rætt um íslenska náttúru og ferðaþjónustu. Svæði útvarpsstöðvarinnar er einkum kringum Seattle og á vesturströnd Bandaríkjanna.