Veftré Print page English

Bókasýningin. Útgefendur og höfundar


Forseti heimsækir sýningarbása á bókasýningunni í Frankfurt og hittir stjórnendur og fulltrúa hinna ýmsu þýsku útgáfufyrirtækja sem gefa út verk íslenskra höfunda. Margir íslenskir höfundar taka þátt í kynningu á verkum sínum á sýningunni. Auk þess heimsótti forseti sýningarbása íslensku útgáfufyrirtækjanna sem eru að kynna íslensk ritverk og skoðaði íslenska sýningarskálann þar sem mikill fjöldi gesta hlýddi á upplestur íslenskra höfunda og samræður  við þá og naut mynda af íslenskri náttúru og frá heimilum íslenskra lesenda. Myndir frá Þýskalandsferð forseta.