Veftré Print page English

Íslenski skálinn í Frankfurt


Forseti er viðstaddur opnun íslenska skálans á Bókasýningunni í Frankfurt ásamt utanríkisráðherra Þýskalands og forystumönnum bókasýningarinnar. Menntamálaráðherra Svandís Svavarsdóttir flutti ávarp og þvínæst skoðuðu gestir hvernig íslensk náttúra og risastórar veggmyndir frá heimilum íslenskra lesenda kallast á á svæðinu.