Veftré Print page English

Forsetamerki skáta


Forseti afhendir 18 skátum forsetamerki við hátíðlega athöfn í Bessastaðakirkju. Skátarnir komu frá níu skátafélögum víða að á landinu. Skátahöfðingi Bragi Björnsson afhenti einnig hverjum og einum skjal þessu til staðfestingar. Að athöfninni lokinni var skátum og fjölskyldum þeirra boðið til Bessastaðastofu.