Veftré Print page English

Fjölskylduhjálp Íslands


Forseti afhendir viðurkenningar Fjölskylduhjálpar Íslands til fyrirtækja og annarra aðila sem stutt hafa hjálparstarf og matargjafir Fjölskylduhjálparinnar. Jafnframt var kynnt skýrsla sem Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands hefur gert um fjölda einstaklinga og samsetningu þeirra hópa og fjölskyldna sem notið hafa aðstoðar Fjölskylduhjálparinnar. Forseti flutti stutt ávarp og þakkaði Fjölskylduhjálp Íslands fyrir ötult hugsjónastarf hennar á undanförnum árum. Mikilvægt væri einnig að allir ábyrgir aðilar sameinuðust um að draga úr fátækt í landinu svo Íslendingar þyrftu ekki á næstu árum að fá fleiri slíkar skýrslur í hendur. Vefsíða Fjölskylduhjálpar Íslands.