Veftré Print page English

Whole Food


Forseti tekur á móti sendinefnd starfsmanna Whole Food verslanakeðjunnar í Bandaríkjunum sem sérhæfir sig í gæðamatvælum. Tilgangur heimsóknarinnar er að kynnast framleiðslu á lambakjöti, heimsækja sveitir og styrkja tengsl við framleiðendur á íslenskum matvælum sem seld hafa verið með góðum árangri í verslunum keðjunnar vítt og breitt um Bandaríkin. Verkefninu er stjórnað af Baldvin Jónssyni.