Veftré Print page English

Sendiherra Slóvakíu


Forseti á fund með sendiherra Slóvakíu á Íslandi, Dušan Rozbora, sem senn lætur af störfum. Rætt var um árangur af heimsókn forseta Slóvakíu Ivan Gašparovič árið 2010 og áhuga Slóvaka á að nýta sér tæknikunnáttu Íslendinga við virkjun jarðhita. Einnig var fjallað um árangur Slóvaka í uppbyggingu efnahagslífsins meðal annars með því að nýta kunnáttu íbúanna á sviði tækni og iðnaðarframleiðslu.