EUWIIN. Konur og nýsköpun
Forseti flytur ávarp í upphafi evrópskrar ráðstefnu um nýsköpun kvenna í hagkerfum samtímans. Ráðstefnuna, sem haldin er á vegum samtakanna European Women Inventors & Innovators Network, sækja konur frá mörgum löndum Evrópu og er þar á ýmsan hátt fjallað um aukna hlutdeild kvenna í nýsköpun og frumkvöðlastarfi. Þá er í tengslum við ráðstefnuna samkeppni sprotafyrirtækja víða úr Evrópu sem konur hafa stofnað á undanförnum árum.
Ræða forseta.