Veftré Print page English

Þingið í Króatíu


Forseti á fund með forseta þjóðþings Króatíu og nefnd þingmanna sem heimsækja Ísland í boði Alþingis. Rætt var um framlag Íslands á sínum tíma til að viðurkenna sjálfstæði Króatíu, viðræður landsins á undanförnum árum við Evrópusambandið og þróun Evrópu í komandi framtíð, einkum nauðsyn á vaxandi tengslum milli smárra og miðlungsstórra ríkja í Evrópu. Einnig var fjallað um möguleika á samvinnu á sviði jarðhitanýtingar, fiskveiða og ferðaþjónustu.