Veftré Print page English

Alaska og Norðurslóðir


Forseti á fund með Alice Rogoff, útgefanda AlaskaDispatch og frumkvöðli um víðtæka umræðu um framtíðarþróun Norðurslóða. Rætt var um samstarf Íslands og Alaska sem þróast hefur á undanförnum árum og þau tækifæri í tækni, fjárfestingu og vísindarannsóknum sem finna má á Norðurslóðum. Alice Rogoff sótti Rannsóknarþing Norðursins og hefur ríkan áhuga á að efla tengsl Íslands og Alaska í þágu samvinnu á Norðurslóðum.