Veftré Print page English

Jöklarannsóknir á Indlandi


Forseti á fund með Anil V. Kulkarni frá Indian Institute of Science og sendiherra Indlands á Íslandi, S. Swaminathan, um samvinnu við íslenska jöklafræðinga og náttúrufræðinga til að efla rannsóknir á jöklum á Indlandi og nýta sér þar með vísindaþekkingu og fræðilega reynslu Íslendinga. Forseti hvatti til slíks samstarfs þegar hann tók við Nehruverðlaununum í opinberri heimsókn til Indlands í ársbyrjun 2010.