Veftré Print page English

Barein


Forseti ræðir við athafnamenn frá Barein sem áhuga hafa á útflutningi á vatni frá Íslandi til Miðausturlanda, bæði í flöskum og með tankskipum. Einnig reifuðu þeir hugmyndir sínar um framleiðslu ýmissa vörutegunda úr áli sem skynsamlegt gæti verið að framleiða á Íslandi í stað þess að flytja álið alfarið út sem hrávöru. Fyrirtæki þeirra framleiðir margvíslegar slíkar vörur í samvinnu við álverksmiðjur víða um heim.