Veftré Print page English

Sendiherra Taílands


Forseti á fund með nýjum sendiherra Taílands, hr. Piyawat Niyomrerks, sem afhenti trúnaðarbréf sitt á Bessastöðum. Rætt var um framlag taílenska samfélagsins á Íslandi til menningar og þjóðfélags. Einnig var fjallað um aukin viðskipti Íslendinga við lönd í Asíu, tækifæri á því sviði sem og breytingar sem orðið hafa í stjórnmálum Taílands að undanförnu.