Veftré Print page English

Samstarf við Alaska


Forseti á fund með forseta öldungadeildar ríkisþingsins í Alaska, Gary Stevens, sem verið hefur á Íslandi til að kynna sér nýtingu hreinnar orku, einkum jarðhita. Forseti hefur um árabil lagt áherslu á samstarf við Alaska á þessu sviði og íslenskir sérfræðingar og verkfræði- og orkufyrirtæki hafa sýnt áhuga á samskiptum við Alaska á þessu sviði. Fyrr í sumar átti forseti fund með ríkisstjóra Alaska Sean Parnell um þessi efni.