Veftré Print page English

Ljóðahátíðir og ferðaþjónusta


Forseti á fund með kínverska ljóðskáldinu og athafnamanninum Huang Nubo sem skipulagt hefur ljóðahátíðir á Íslandi og í Kína og áformar að efla straum ferðamanna frá Kína og Bandaríkjunum til Íslands. Mörg íslensk ljóðskáld munu sækja ljóðahátíð sem haldin verður í Háskólanum í Beijing í haust en hliðstæð hátíð var haldin á Íslandi í fyrra. Fundinn sátu einnig sendiherra Kína á Íslandi Su Ge og Íslendingar sem gengu með Huang Nubo á Norðurpólinn.