Veftré Print page English

Íslandsdagur í Eistlandi


Forseti mun setja Íslandsdag sem haldinn verður í Tallinn, höfuðborg Eistlands, sunnudaginn 21. ágúst, í tilefni þess að Íslendingar urðu fyrir 20 árum fyrstir allra þjóða til að viðurkenna fullt sjálfstæði Eystrasaltsríkjanna.
Forsetinn mun flytja ávarp sitt á hinni árlegu sönghátíð „Söngvar frelsisins“ en slíkar hátíðir voru á Sovéttímanum mikilvægur vettvangur í  andófi og frelsisbaráttu Eistlendinga. Ávarpið verður flutt á miðnætti þegar Íslandsdagurinn gengur í garð.
Forseti Íslands mun síðdegis á morgun, laugardaginn 20. ágúst, eiga fund með forseta Eistlands, Toomas Hendrik Ilves, sem setur sönghátíðina síðar um kvöldið. Forseti Íslands mun einnig sitja kvöldverðarboð Eistlandsforseta.
Fjölmargir íslenskir tónlistarmenn og kórar taka þátt í Íslandsdeginum, opnaðar verða sýningar á íslenskri hönnun og ljósmyndum frá Íslandi. Einnig verður kynning á íslenskum mat. Viðburðirnir eru skipulagðir víða um Tallinn, höfuðborg Eistlands.