Veftré Print page English

Sjálfbærar borgir og byggingar


Forseti ræðir við William McDonough arkitekt og hóp erlends áhrifafólks um nýjar áherslur í sjálfbærni borga og bygginga, einkum með tilliti til endurnýtingar efnis og hreinnar orku. William McDonough er einn fremsti sérfræðingur veraldar á þessu sviði, höfundur grundvallarritsins Cradle to Cradle og deildarforseti arkitektadeildar Virgíníuháskóla í Bandaríkjunum.