Veftré Print page English

Forystusveit Lions


Forseti á fund með Sid L. Scruggs, fyrrum alþjóðaforseta Lionshreyfingarinnar og nokkrum forystumönnum hennar á Íslandi um starf hreyfingarinnar víða um heim og hér á landi, einkum vaxandi áherslur á baráttu gegn fátækt, fyrir bættum lífskjörum og nýtingu hreinna orkugjafa í efnaminni samfélögum. Aðildarfélög Lionshreyfingarinnar leggja nú enn meiri áherslu á margvísleg velferðarverkefni í sínum heimabyggðum. Einnig var fjallað um öflugt framlag Lionshreyfingarinnar til íslensks samfélags.