Forseti Íslands
The President of Iceland
Borgarstjóri Los Angeles
Forseti ræðir við borgarstjóra Los Angeles Antonio Villaraigosa og hóp áhrifamanna í viðskiptum og menningarlífi um viðbrögð Íslendinga við fjármálakreppunni, vanda kjörinna fulltrúa á krepputímum, þróun mála í Bandaríkjunum og Evrópu, lærdómana sem reynsla Íslendinga felur í sér. Einnig var fjallað um glímu borgarsamfélaga við að tryggja velferð íbúanna, menntun og þjónustu sem og þær stoðir í samgöngum og mannvirkjum sem nútímaborgarsamfélag verður að hvíla á.
Letur: |
| |