Veftré Print page English

Úthafsróður


Forseti á fund með Fiann Paul sem róið hefur yfir Atlantshafið og áformar samskonar leiðangur yfir Indlandshaf. Rætt var um dvöl hans á Grænlandi og verkefni í Himalayjafjöllum þar sem hann m.a. styrkir byggingu skóla. Fiann Paul á tvö heimsmet í úthafsróðri. Hann hefur einnig unnið að ljósmyndun mannlífs og landslags á Íslandi,  Grænlandi og í Færeyjum.