Veftré Print page English

Málefni Indlands


Forseti á fund með Ajit Hutheesing og Sigrúnu Kristínu Baldursdóttur ræðismanni Íslands í Ástralíu sem skipulagði ferð Hutheesing til Íslands. Rætt var um þróun Indlands á undanförnum áratugum sem og framtíð landsins. Móðir Ajit Hutheesing var systir Nehru, fyrsta forsætisráðherra Indlands, en Ajit Hutheesing hefur haft margvísleg tækifæri til að fylgjast með þróun landsins bæði vegna þeirra tengsla sem og vegna starfa sinna á alþjóðavettvangi m.a. fyrir Alþjóðabankann.