Veftré Print page English

CNBC. Málþing


Forseti tekur þátt í málþingi á vegum alþjóðlegu sjónvarpsstöðvarinnar CNBC en það bar heitið Energy Opportunities. Rúmlega sextíu forystumenn ýmissa stórfyrirtækja, sérfræðistofnana og fjárfestingarsjóða tóku þátt í málþinginu en verkefni þess var að meta hvernig samgöngukerfi nútíðar og framtíðar gæti í auknum mæli byggst á nýtingu hreinnar orku. Forseti flutti ávarp á málþinginu og rakti m.a. sögu vetnisverkefnisins á Íslandi, en það byggðist meðal annars á samstarfi við Daimler Chrysler og Shell, sem og hugmyndir um að auka notkun rafbíla og annarra umhverfisvænna ökutækja á Íslandi.