Veftré Print page English

Brúðkaup í Mónakó


Forseti verður viðstaddur brúðkaup Alberts II og Charlène Wittstock sem fram fer í Mónakó á morgun, laugardaginn 2. júlí. Að lokinni vígsluathöfn í dómkirkjunni er boðið til hátíðarkvöldverðar í höllinni.
Albert prins hefur verið virkur þátttakandi í málefnum Norðurslóða sem og í alþjóðlegri umræðu um loftslagsbreytingar. Stofnun hans hefur styrkt fjölmörg verkefni á þeim sviðum, m.a. alþjóðleg málþing um heimskautarétt sem haldin hafa verið á vegum Háskólans á Akureyri. Þá hefur hann einnig verið mikill stuðningsmaður Smáþjóðaleikanna, íþróttahátíðar smæstu ríkja í Evrópu, og heimsótti m.a. Ísland þegar þeir voru haldnir hér.