Veftré Print page English

Sendiherra Rúmeníu


Forseti á fund með sendiherra Rúmeníu á Íslandi, hr. Alexandru Victor Micula, sem senn lætur af störfum. Rætt var um samstarf á sviði orkumála, einkum nýtingu jarðhitasvæða í Rúmeníu, en það mál var á dagskrá í opinberri heimsókn forseta Íslands til Rúmeníu fyrir fjórum árum. Ennfremur var fjallað um stjórnmálaþróunina í landinu, áhrif efnahagskreppunnar í Grikklandi á nágrannalöndin og samstarfið innan Evrópusambandsins.