Veftré Print page English

Sendiherra Ungverjalands


Forseti á fund með sendiherra Ungverjalands á Íslandi, Lajos Bozi, sem senn lætur af störfum. Rætt var um reynslu Íslands í kjölfar fjármálakreppunnar og þá margvíslegu erfiðleika sem Ungverjar hafa glímt við á undanförnum árum, viðræður um aðild Íslands að Evrópusambandinu og hitaveituverkefni sem verkfræðifyrirtækið Mannvit vinnur nú að í Ungverjalandi.