Sjómannadagurinn á Patreksfirði
Forseti tekur þátt í hátíðarhöldum í tilefni sjómannadagsins á
Patreksfirði. Fyrir hádegi verður hann viðstaddur þegar blóm verða lögð
að minnisvarða um látna sjómenn og sækir sjómannadagsmessu í
Patreksfjarðarkirkju. Þá mun forseti flytja hátíðarræðu dagsins á
útisamkomu sem hefst klukkan 14:00.
Fréttatilkynning.
Ræða forseta.