Heimsóknir á gossvæðinu
Forseti heimsækir á ný miðstöð almannavarna á Kirkjubæjarklaustri og ræðir við fólk úr björgunarsveitum, slökkviliðum og lögreglu sem voru að halda á hina ýmsu bæi austar í sýslunni til að hjálpa til við hreinsunarstörf og taka þátt í öðrum aðgerðum. Þá fer forseti um sveitir og skoðar áhrif gossins á landbúnað og ræðir við bændur.
Fréttatilkynning.