Veftré Print page English

Flutningaskóli Samskipa


Forseti er viðstaddur útskrift nemenda úr Flutningaskóla Samskipa. Skólinn hefur starfað í þrjú ár og er merkileg nýjung í starfsfræðslu fyrirtækja. Í ávarpi áréttaði forseti að  mikilvægt væri að forystumenn í atvinnulífi skoðuðu vel það fordæmi sem flutningaskólinn hefur skapað og ræddi þýðingu öflugra flutningafyrirtækja fyrir samskipti Íslands við umheiminn. Með opnun nýrra siglingaleiða fælist í reynslu slíkra fyrirtækja og þekkingu starfsfólks mikilvæg auðlind. Fyrir útskriftarathöfnina kynnti forseti sér starfsemi Samskipa og heimsótti ýmsar starfsstöðvar fyrirtækisins á hafnarsvæðinu.