Veftré Print page English

Sendiherra Kúbu


Forseti á fund með nýjum sendiherra Kúbu, hr. Francisco Graupera, sem afhenti trúnaðarbréf sitt á Bessastöðum. Fjallað var um breytingar sem orðið hafa í stjórnkerfi og efnhahagslífi Kúbu, samvinnu landsins við fjölmörg ríki Evrópu og möguleika á batnandi sambúð við Bandaríkin. Sendiherrann lýsti áhuga á að auka ferðamannastraum frá Íslandi sem og samvinnu í flugrekstri og á öðrum sviðum.