Veftré Print page English

Málþing um jarðhita


Forseti sækir málþing um jarðhita sem haldið er í Hellisheiðarvirkjun en þar kynntu íslenskir sérfræðingar og vísindamenn forseta Slóveníu og sendinefnd hans þróunina í nýtingu jarðhita á Íslandi og þann árangur sem hún hefur skilað á fjölmörgum sviðum íslensks atvinnulífs og þjóðlífs. Á málþinginu töluðu fulltrúar Orkuveitu Reykjavíkur, Orkustofnunar, ÍSOR, Landbúnaðarháskóla Íslands og Mannvits.