Hátíðarkvöldverður
Forseti býður til hátíðarkvöldverðar á Bessastöðum til heiðurs Danilo
Türk, forseta Slóveníu, og Barbara Miklič Türk forsetafrú. Meðal gesta eru
ráðherrar og embættismenn í fylgdarliði forseta Slóveníu, ráðherrar í
ríkisstjórn Íslands, forsetar Alþingis og Hæstaréttar, sem og
embættismenn og sérfræðingar sem taka þátt í ýmsum viðburðum í opinberri
heimsókn forseta Slóveníu.
Ræða forseta.
Ensk þýðing ræðunnar.