Veftré Print page English

Áliðnaður. Styrkur efnahagslífsins


Forseti á fund með forstjóra álsviðs Rio Tinto og yfirmanni Evrópudeildar þess ásamt stjórnendum álversins í Straumsvík um uppbyggingu og endurnýjun sem fyrirtækið hefur þegar ákveðið á Íslandi. Um 60 milljörðum íslenskra króna verður varið til þeirra framkvæmda. Einnig var fjallað um styrkleika íslensks efnahagslífs á komandi árum og áratugum og endurreisn í kjölfar áfalla undanfarinna ára.