Veftré Print page English

UTmessan


Forseti heimsækir sýningu upplýsingatækni- og sprotafyrirtækja sem haldin er í Háskólanum í Reykjavík í tengslum við UTmessuna. Fjöldi fyrirtækja í ólíkum greinum hugbúnaðar kynntu starfsemi sína og árangur en mörg þeirra hafa vaxið mjög á undanförnum árum. Einnig var kynning á menntunarleiðum og námsframboði á þessu sviði. Myndir (ljósmyndari: Aldís Geirdal Sverrisdóttir).