Veftré Print page English

Forvarnarstarf í framhaldsskólum


Forseti á fund með Ingu Dóru Sigfúsdóttir og Jóni Sigfússyni frá Rannsóknum og greiningu við Háskólann í Reykjavík um rannsókn á áfengisnotkun meðal framhaldsskólanema á Íslandi en rannsóknin var framkvæmd í öllum framhaldsskólum og niðurstöður hennar verða birtar á næstunni. Einnig var rætt um reynsluna af Forvarnardeginum og vaxandi umsvif verkefnisins Youth in Europe en það er forvarnarsamstarf fjölmargra borga í Evrópu og er forseti verndari verkefnisins.