Veftré Print page English

Samúðarkveðjur til keisara Japans


Forseti sendi í morgun sent Hans Hátign Akihito Japanskeisara samúðarkveðjur frá sér og íslensku þjóðinni. Hinar hræðilegu afleiðingar jarðskjálftanna og flóðbylgjanna hafi vakið djúpa samúð og hugur okkar sé með fjölskyldum og vinum þeirra sem látist hafa og einnig þeim sem misst hafa heimili sín og búa nú við óvissa framtíð. Vinátta Íslands og Japans sé byggð á langvarandi samvinnu og Íslendingar þekki jarðskjálfta og náttúruhamfarir af eigin raun þótt reynsla okkar hafi blessunarlega ekki verið eins sár og sú sem nú þjáir hina japönsku þjóð. Fréttatilkynning.