Veftré Print page English

Forseti þýska þingsins


Forseti á fund með prófessor dr. Norbert Lammert, forseta þýska þingsins, sem ásamt sendinefnd sinni heimsækir Ísland í boði Alþingis. Rætt var um langvarandi samvinnu Íslands og Þýskalands á sviði menningar, mennta og viðskipta; breytingar á Norðurslóðum og áhrif nýrra siglingaleiða og orkunýtingar á hagkerfi Evrópu sem og viðræður Íslands við Evrópusambandið og þróun Icesave málsins, afstöðu Breta og Hollendinga og stuðning Evrópusambandsríkja við fyrri samninga.