Forseti Íslands
The President of Iceland
Pólsk orkufyrirtæki
Forseti á fund með fulltrúum pólsku orkufyrirtækjanna PG-EO, sem er stærsta orkufyrirtæki Póllands, og Eko Effekt sem leggur áherslu á umhverfisvæna orkunýtingu. Þeir heimsækja Ísland í samvinnu við Landsvirkjun og Verkís til að kynna sér árangur Íslendinga í nýtingu vatnsafls og jarðhita. Rætt var um tækifæri til samvinnu íslenskra og pólskra sérfræðinga, einkum til að kanna nýtingu jarðvarma í Póllandi, m.a. til húshitunar.
Letur: |
| |