Veftré Print page English

Samúðarkveðja til Nýja Sjálands


Forseti sendir landstjóra Nýja Sjálands, samúðarkveðjur vegna jarðskjálftanna í Christchurch sem kostað hafa tugi mannslífa og valdi gríðarlegu eignatjóni. Hugur okkar sé með fjölskyldum og vinum þeirra sem látið hafa lífið og með þeim sem slasast hafa sem og öðrum íbúum landsins sem nú glímir við mikla erfiðleika. Fjölmargir Íslendingar eigi ættingja og vini í Christchurch og því fylgist þjóðin náið með fréttum af hinum hörmulegum atburðum. Fréttatilkynning