Veftré Print page English

Konstantín II


Forseti ræðir við Konstantín II, fyrrum konung í Grikklandi, um forystu hans í Alþjóða siglingasambandinu og störf hans í Ólympíunefndinni en þar hefur hann átt sæti í marga áratugi og fylgst náið með alþjóðlegri þróun íþrótta. Einnig var rætt um þróun mála í Evrópu og þær breytingar sem orðið hafa í heimalandi hans á undanförnum áratugum. Hann tekur þátt í stjórnarfundi Alþjóða siglingasambandsins sem haldinn er á Íslandi.