Veftré Print page English

Sendiherra Gana


Forseti á fund með nýjum sendiherra Gana, frú Hajia Fati Habib-Jawulaa, sem afhenti trúnaðarbréf sitt á Bessastöðum. Rætt var um þróun sjávarútvegs í Gana en námsmenn þaðan hafa hlotið þjálfun í Sjávarútvegsskóla Sameinuðu þjóðanna á Íslandi. Þá var einnig fjallað um aukna hlutdeild kvenna í stjórn landsins, nýtingu olíuauðlinda sem nýlega hafa fundist sem og þróun mála í Afríku.