Veftré Print page English

Umferðaröryggi


Forseti á fund með Jean Todt, forseta Alþjóða bílasamtakanna FIA, og forystumönnum Félags íslenskra bifreiðaeigenda um aukið öryggi í umferðinni og það markmið að Ísland verði án dauðsfalla af völdum umferðarslysa. Jean Todt heimsækir Ísland til að leggja þessari baráttu lið og miðla af reynslu sinni. Einnig var rætt um nýtingu hreinna orkugjafa fyrir bifreiðar og möguleikana á að Ísland geti byggt umferð sína í náinni framtíð á hreinum orkugjöfum.