Veftré Print page English

Börn hjálpa börnum


Forseti ýtir úr vör söfnuninni Börn hjálpa börnum en hún er á vegum ABC barnahjálpar. Hópur nemenda úr Kársnesskóla í Kópavogi kom með söfnunarbauka til Bessastaða og ræddu við forseta um verkefni söfnunarinnar en afrakstur hennar verður notaður til að kaupa borð og bekki fyrir börn í skólum í Pakistan og koma þaki yfir skólastarf götubarna í Nairóbí í Kenía.  Börn í grunnskólum um allt land taka þátt í söfnuninni. ABC barnahjálp