Veftré Print page English

Austur-vestur stofnunin


Forseti á fund með John Mroz, stjórnanda Austur-vestur stofnunarinnar, EastWest Institute, um verkefni stofnunarinnar á sviði alþjóðamála og bættrar sambúðar og um samvinnuverkefni sem tengjast Kína, Indlandi og Rússlandi. Einnig var rætt um mikilvægi þess að styrkja öryggi á sviði netvæðingar og tölvumála til að draga úr hættu á upplausn og átökum sem skortur á slíku öryggi gæti leitt af sér á komandi árum.