Veftré Print page English

Fundur með Clinton


Forseti á fund í New York með William J. Clinton, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna. Rætt var um glímu Íslendinga við afleiðingar fjármálakreppunnar, þann árangur sem náðst hefur, mikilvægi hreinnar orku og rannsóknir íslenskra vísindamanna á bráðnun jökla og breytingum á náttúrunni. Þá var fjallað um þróun mála á norðurslóðum, opnun nýrra siglingaleiða milli Asíu, Evrópu og Ameríku en lega Íslands skapar landinu lykilsess í ljósi þeirra breytinga sem þá yrðu á heimsviðskiptum. Kínverjar, Indverjar og Rússar hafa því vaxandi áhuga á samstarfi við Ísland og mikilvægt sé að Ísland, Bandaríkin og aðrar þjóðir á norðurslóðum bregðist við þeim verkefnum sem bráðnun íss kallar á. Þá var og fjallað um mótmælin í Mið-Austurlöndum og hvernig ný upplýsingatækni eykur áhrifamátt almennings. Myndir.