Veftré Print page English

Íslensku bókmenntaverðlaunin


Forseti afhendir Íslensku bókmenntaverðlaunin við hátíðlega athöfn á Bessastöðum. Verðlaunin eru afhent í tveimur flokkum, flokki fagurbókmennta og flokki fræðirita og bóka almenns eðlis.

Tilnefndar bækur eru í flokki fagurbókmennta:
Bragi Ólafsson: Handritið að kvikmynd Arnar Featherby og Jóns Magnússonar um uppnámið á veitingahúsinu eftir Jenný Alexson, útgefandi Mál og menning.
Bergsveinn Birgisson: Svar við bréfi Helgu, útgefandi Bjartur.
Gerður Kristný: Blóðhófnir, útgefandi Mál og menning.
Sigurður Guðmundsson: Dýrin í Saigon, útgefandi Mál og menning.
Þórunn Erlu-Valdimarsdóttir: Mörg eru ljónsins eyru, útgefandi JPV útgáfa.
 
Í flokki fræðibóka og bóka almenns efnis:
Einar Falur Ingólfsson: Sögustaðir – í fótspor W.G. Collingwoods, útgefandi Crymogea og Þjóðminjasafn Íslands.
Guðni Th. Jóhannesson: Gunnar Thoroddsen – Ævisaga, útgafandi JPV útgáfa.
Helgi Hallgrímsson: Sveppabókin – Íslenskir sveppir og sveppafræði, útgefandi Skrudda.
Margrét Guðmundsdóttir: Saga hjúkrunar á Íslandi á 20. öld. Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga.
Sigrún Pálsdóttir: Þóra biskups og raunir íslenskrar embættismannastéttar, útgefandi JPV útgáfa.