Veftré Print page English

Samúðarkveðjur til Rússlands


Forseti Íslands Ólafur Ragnar Grímsson hefur í morgun, þriðjudaginn 25. janúar, sent Dmitry Medvedev, forseta Rússlands, samúðarkveðjur sínar og íslensku þjóðarinnar vegna hinna hræðilegu hryðjuverka á Domodedovo flugvellinum í Moskvu. Hugur okkar sé hjá fjölskyldum hinna látnu og með hinum særðu og ástvinum þeirra. Baráttan gegn hryðjuverkum sé meðal brýnustu verkefna okkar tíma og samstaða allra þjóða afar áríðandi eigi árangur að nást.